19.3.2009 | 21:12
Ráðinn kennari í Naustaskóla
Í dag var ég einn af 11 kennurum sem var ráðinn til starfa sem kennari við Naustaskóla á Akureyri, 68 sóttu um störfin. Ég er ráðinn frá 1. ágúst 2009 en samningurinn í Lundarskóla rennur út 31. júlí í sumar.
Naustaskóli er í byggingu og stefnan er að fyrsti áfangi verði tilbúinn í júlí svo fyrsta starfsár geti hafist í lok ágúst. Það er gríðarlega spennandi verkefni að fá að skapa skóla frá grunni. Að taka þátt í mótun umgjarðar um börn, starfsfólk, foreldra og samfélagið í kring er heillandi fyrir mann sem hefur lengi haft mikinn áhuga á uppbyggingu samfélaga og uppeldis- og menntamálum og ekki spillir fyrir að ég hef menntað mig í mannfræði og grunnskólafræðum.
Ég kannast við örfá nöfn þeirra kennara sem einnig voru ráðnir og það eitt að byrja á nýjum stað með nýju fólki er spennandi. Alls verða 10 aðrir starfsmenn ráðnir en búið er að ráða deildarstjóra og í fyrra var skólastjórinn ráðinn. Fyrsta árið verða um 120 nemendur í 1-7. bekk. Meira síðar um hvað ég mun kenna og með hverjum.
Mjög spennandi starf framundan og krefjandi.
Ég mun sakna allra í Lundarskóla þar sem mér hefur liðið ákaflega vel og fengið tækifæri til að móta fyrstu skrefin sem kennari.
Kíkið endilega á þennan frábæra skóla: Naustaskóli
Magri
Athugasemdir
Til hamingju med starfid. Alt gott ad fretta fra Kanari.
kv
tengdo
Tengdo (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 12:50
Frábært til hamingju vonandi verðurðu heppinn með samkennara
skilaðu kveðju til fjölskyldunar frá okkur
-GTH og DB-
Gunnar T (IP-tala skráð) 20.3.2009 kl. 23:53
Frábært og til hamingju !! Þín verður saknað ;)
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 22.3.2009 kl. 17:42
Til hamingju með djobbið!
Gulli (IP-tala skráð) 26.3.2009 kl. 15:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.