13.1.2009 | 20:20
Ægir Eyfjörð
Við komum á fæðingardeild FSA kl. 1645 og ætluðum að láta skoða Kristbjörgu þar sem hún var búin að vera með verki um nóttina en þeir entust ekki. Þegar við mættum höfðu tveir samdrættir, öflugir, átt sér stað í bílnum og þegar við komum í skoðun var sóttin orðin afar öflug, tvær mínútur á milli. Ása fór til Hermínu systur og fjölskyldu og ætlunin var að sækja hana eftir "skoðun". Jæja, skoðunin leiddi í ljós fimm í útvíkkun, Kristbjörg settist á bolta og tók blíðlega á móti hverjum samdrættinum á fætur öðrum, ég hringdi í mömmu sem kom og fór með Ásu heim og gisti hjá henni. Ég brunaði heim og sótti "fæðingarsettið" sem er föt og tannburstar og myndavélar og beint á sjúkrahúsið.
Kristbjörg stóð sig eins og hetja og sleppti deyfingu í þetta sinn; leghálsinn þandist út, vatnið fór og hún byrjaði að rembast. Kl. 1911 kom Ægir Eyfjörð í fangið á mömmu sinni, sæll og glaður og móðirin í sæluvímu eftir mikil átök en einnig með mikla reynslu af fyrri fæðingu. Pabbinn klippti á naflastrenginn og við brostum. Hrafnhildur Ævarsdóttir tók á móti drengnum og þvílík dásemdar kona sem það er, mjög gott fólk upp til hópa á fæðingardeildinni. Við upplifðum þessa fæðingu á mjög jákvæðan hátt, okkur fannst við örugg og okkur leið vel, allavega milli verkja! Við erum þakklát.
Ása Eyfjörð hitti bróður sinn í dag og henni fannst þessi "dúkka" spennandi og enn meira spennandi þegar hún fór að hjala, væla og horfa á hana. Ása gaf honum bangsa og stóð sig vel, vildi helst bara hlaupa um gangana og kíkja í herbergin. Það er gaman að eiga tvö börn.
Hér kemur sýnishorn af Ægi Eyfjörð Gunnþórssyni
Lífið er gott:)
Magri
Af mbl.is
Innlent
- Fundasjúkt kerfi sem þarf að breyta
- Minntust Heidda í blíðskaparveðri
- Jón Gnarr: Enginn frambjóðönd elskar sauðkindina eins og ég
- Fann bein og tönn úr dýrum í sprungunni
- Frambjóðendur svara: Baldur Þórhallsson
- 54 milljóna króna vinningur gekk út
- Heiðarlegir hakkarar til varnar
- Ferðamaður slasaðist við Kerið
- Stefna á að afgreiða málið í júní
- Slasaði knapinn kominn til byggða
Erlent
- Beitti neitunarvaldi gegn lögunum umdeildu
- Hótar að segja sig úr þjóðstjórninni
- Telur að Rússar herði sókn sína í norðaustri
- Fluttu lík Benjamín frá Gasa
- Ég hélt ég myndi deyja, með dóttur mína í bílnum
- Rússar leggja hald á bankaeignir
- Flóð víða í Evrópu
- Árásarmaðurinn mættur í dómshúsið
- Minnst 50 létust í skyndiflóðum
- Árásarmaður Pelosi fékk þungan dóm
Fólk
- Listasafn Reykjavíkur hlaut Íslensku safnaverðlaunin
- Handtóku mann sem er grunaður um árásina
- Fjölskylda Censori óttast um velferð hennar
- Coppola snýr aftur
- Myndskeið: Diddy gekk í skrokk á Ventura
- Kóngurinn ríkari en mamma sín
- Staðgengill Chris Pratt fannst látinn á heimili sínu
- Ný mynd um Happy Gilmore í vinnslu
- Hafa ekki sést saman í 47 daga
- Mikilvægasta lexían er sú að vita hvenær á að þegja
Athugasemdir
Æði-æði-æði
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 13.1.2009 kl. 21:53
Hann er ekkert smá æðislegur..Til hamingju flotta fjölskylda :)
Heiðdís Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:05
Vá hvað þetta er flottur strákur
Yndislegt Gunnþór minn og enn og aftur hamingjuóskir til ykkar allra. Þetta verður bara betra og betra trúðu mér
Dísa Dóra, 13.1.2009 kl. 22:11
kæra fjölskylda,
innilega til hamingju með þennan flotta strák...
gangi ykkur allt í haginn
Kibbi og Jenný (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:12
Fallegur er hann Ægir -Til hamingju með hann fallega fjölskylda. Gangi ykkur allt í haginn!
Mæja Guðbergs (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:25
Elsku Gunnþór, Kristbjörg og Ása Innilega aftur til hamingju með prinsinn.. og fallega nafnið hans. knús í bæinn Steinunn og Co
steinunn jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 13.1.2009 kl. 22:27
Innilegar hamingjuóskir með Ægi Eyfjörð, myndarstrákur:) Tek undir með þér Gunnþór, það er gaman að eiga 2 börn;)
Kveðjur frá Dalvík, Maja, Addi E., Alexander Már og Rakel Bára
Maja (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 11:01
Frábært að fá að sjá myndir, við kíkkum í heimsókn fljótlega, svona þegar vel stendur á hjá ykkur ;)
Hugrún og co (IP-tala skráð) 14.1.2009 kl. 13:56
Til hamingju með soninn Gunnþór. Þú ert að verða asskoti ríkur.
Kveðja
INGI
Ingi Freyr Ágústsson (IP-tala skráð) 16.1.2009 kl. 07:25
Hamingjuóskir með litla gullið ykkar!
Er ekki frá því en að hann eigi smá svip frá stóru systur sinni :*
Hjartans kveðjur
Helga Hrönn
Helga Hrönn (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 16:42
Innilega til hamingju með fallegan dreng og fallegt nafn!
Soffía Bæringsd (IP-tala skráð) 18.1.2009 kl. 22:37
Feiknar myndalegur herramaður hér á ferð, og svona líka heppinn með litlu stórusystirina. Thau eiga eflaust eftir ad passa vel uppá hvort annað. Kv. frá Færeyjum
inga jenný (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 23:40
Innilega til hamingju með dreginn!
Ragnheiður Reynisdóttir (IP-tala skráð) 20.1.2009 kl. 09:35
til hamingju með soninn
Helga Þórey (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 17:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.