22.1.2009 | 23:52
Ása Eyfjörð og Ægir Eyfjörð-myndir
Hún Ása er mjög ákveðin stelpa, mjög lífsglöð og þarfnast athygli. Henni finnst gaman að dansa og dilla sér, vera innan um fólk og hafa fjör. Henni finnst ís mjög góður enda dóttir foreldra sinna:)
Ásu finnst frábært að vera úti að leika. Garðurinn okkar hýsir stundum snjó og við nýttum gott tækifæri og gerðum snjókarl, einn barna og annan fullorðins, þið megið geta hvor snjókarlinn þessi er! Ásu finnst snjór frábær til átu og stundum fer hún með pabba sinn út á pall og sækir snjó/klaka í skál.
Ása er mjög ánægð með bróður sinn hann Ægi. Hún vill og fær að aðstoða eins og mögulegt er. Bara krúttlegt.
Ægir Eyfjörð er frískur, stilltur og prúður, hann fær alla okkar hlýju og ást eins og systir hans og þau munu eflaust verða góðir vinir.
Ása Eyfjörð er nú bara lítil stelpa ennþá, rétt að verða 18 mánaða 24. janúar. Hún er voða góð og áhugasöm, Ægir á eflaust eftir að fá að sitja í dúkkukerrunni hennar enda er hún stjórnandi númer eitt! Hann var líka búinn að hlusta á hana skipa fyrir er hann var í móðurkvið og virðist ekki kippa sér mikið upp við systur sína:)
Við erum þakklát, glöð og ánægð að eiga þessi dásamlegu börn.
Magri
Af mbl.is
Fólk
- 61 árs gömul piparmey leitar að ástinni
- Segja Spacey eiga skilið að snúa aftur til Hollywood
- Laufey með tónleika í Royal Albert Hall
- Helgi Björns: Þetta verður eintóm gleði
- Ljósbrot fékk áhorfendur til að rísa úr sætum
- Nýja kærastan sögð skuggalega lík fyrrverandi eiginkonunni
- Eiginkonan rak upp stór augu
- Saknaðarilmur hlýtur 8 Grímutilnefningar
- Streep hlaut heiðurspálmann á opnunarkvöldi Cannes
- Bergur Þór er nýr leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar
Íþróttir
- Þessi 39 ára gömlu hné höndla ekki meira
- Hafdís frábær í öllum leikjunum
- Ótrúleg frásögn Arnars: Þá tók hann upp byssu
- Búnar á því þegar þær skríða á fætur
- Gargaði á okkur og við vöknuðum
- Förum inn í skel
- Töpuðum einum leik í allan vetur
- Fyrsti leikurinn situr enn í mér
- Sýndum að við erum bestar
- Tvíframlengd háspenna í fyrsta leik
Viðskipti
- Það eigi að meta verðleika til launa
- Guðmundur Fertram tilnefndur
- Aðhaldið ætti að vera meira
- Skattar dragi úr hvötum til að skapa verðmæti
- Aukin eftirspurn eftir hollum skólamáltíðum
- Míla fagnar ákvörðun Fjarskiptastofu
- Stefnir í minni launahækkanir á næstu árum
- Eyjólfur Árni endurkjörinn formaður SA
- Vodafone gerir samning um internettengingar í bíla
- Kortavelta ferðamanna dregst mikið saman
Athugasemdir
Yndislegt
Falleg börnin þín elsku Gunnþór minn
Dísa Dóra, 23.1.2009 kl. 12:36
Hlökkum til að hitta ykkur á morgun;)
Til hamingju með daginn Ása ;) Sigurður á líka "afmæli "í dag, 14 mánaða;)
ps , Fallegur skokkur sem Ása er í heheh
Hugrún og co (IP-tala skráð) 24.1.2009 kl. 18:07
Til hamingju frændi með nýja drenginn :)
Strúlla (IP-tala skráð) 31.1.2009 kl. 09:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.