27.12.2006 | 17:39
Gleðilegt nýtt ár 2007
Jólin fóru vel í okkur hér í Magrastræti, matur á Dalvík, Hauganesi og Akureyri, spilakvöld og almenn gleði að venju. Hátíðin fór vel fram og sömu kristnu tuggurnar bornar fram, boðskapur um betri heim og rótin af þeim heimi skal vera umburðarlyndi. Ég hef enn trú á því góða í manneskjunni og vona að árið 2007 verði farsælla umhverfinu og okkur mönnunum.
Árið sem er að líða var ósköp hefðbundið fyrri hluta ársins, ég vann á sjónum og Kristbjörg á skrifstofu Samherja. 30. júní dó Moli, kötturinn okkar sem var okkur mjög kær. Hann lenti fyrir bíl. Lífið heldur áfram og viku seinna eða þann 8. júlí gengum við í hjónaband að heimili okkar að viðstöddum nánustu ættingjum og vinum. Veisla var svo haldin í Frímúrarahúsinu þar sem 120 manneskjur samglöddust okkur í mat, drykk og skemmtun. Dagurinn var frábær í alla staði og við erum þakklát fyrir yndislega fjölskyldu og frábæra vini. Skömmu eftir herlegheitin fórum við til Búlgaríu og lágum þar á sólarströnd í 2 vikur, ljómandi góð ferð.
Ég hætti á sjónum í ágúst og settist á skólabekk eins og sagt er, hóf nám í kennaradeild Háskólans á Akureyri og gengur það ljómandi vel, kostir og gallar eins og í öllu sem birtist okkur. Hermína systir og fjölskylda sem eru búsett í Hamborg og þar áður í Rotterdam eru á heimleið næsta sumar eftir 7 ára dvöl. Skemmtilegt að þau eru að flytja til Akureyrar í Helgamagrastræti, fjölskyldan safnast saman á lítið svæði. Það sem stendur þó uppúr þessu ári er að von er á erfingja í Magrastræti og er barnið skráð í heiminn 4. júlí. Miklar æfingar báru þennan árangur og seint verður efast um að æfingin skapar meistarann!
Árið mun svo enda með fjölskyldumáltíð hér á bæ, áramótaskaup og flugeldar.
Óska öllum velfarnaðar á nýju ári og vona að fólk líti í eigin barm og reyni að gera heiminn betri með því að hugsa fallega og framkvæma í takt við þarfir. Þið þurfið ekki að kaupa allt sem auglýsingar setja fram. Hamingjan felst í jafnvægi milli þarfa og nautna, dygðin er hvorki of eða van heldur hinn gullni meðalvegur og flestir ættu að geta fetað þann veg ef hver og einn er sanngjarn gagnvart sjálfum sér og öðrum.
Munum að brosa
Gleðilegt nýtt ár
Magri
Athugasemdir
Gleðilegt ár gamli. Til hamingju með erfingjann. Sjáumst vonandi á nýju ári.
kveðja
Ingi freyr Ágústsson
Ingi Freyr (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 11:22
Til hamingju með bumbus :) Gleðileg jól og ár.
Gríshildur (IP-tala skráð) 28.12.2006 kl. 22:09
Til hamingju með væntanlegan erfingja. Gleðileg jól og farsælt ár. Lynja
Lynja (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 09:40
Til hamingju með þessar gleðifréttir...einstök upplifun.
Addi E (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 13:10
Til hamingju með barnsvonina!
Gleðilegt árið
Ronja
Ronja (IP-tala skráð) 30.12.2006 kl. 22:48
Til hamingju með tilvonandi erfingja :) og innilega gleðilegt ár og takk fyrir liðna tíð
Dísa (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 10:41
til hamingu elsku gunnþór!
Helga Þórey (IP-tala skráð) 4.1.2007 kl. 19:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.