6.11.2008 | 08:52
Kristbjörg á afmæli
Mín elskulega eiginkona á afmæli í dag, 29 ára, til hamingju með daginn mín kæra. Kristbjörg er hress og kát, móðir stúlku og búin að ganga með annað barn í 7 mánuði. Svo umber hún mig alla daga og það er afrek útaf fyrir sig!
Ása Eyfjörð er hress og kát, hún tók nokkur skref í gær hjá langömmu sinni og tekur stöðugt framförum. Við höfum hvert annað, höfum húsaskjól og vinnu, nægan mat og hreint loft og vatn. Meira þurfum við ekki og það er gott að minna sjálfan sig á það.
Magri
Athugasemdir
Til lukku með konuna og að vera loksins orðinn formlegur kennari
Dísa Dóra, 6.11.2008 kl. 10:29
hamingjuóskir med frúnna, vonandi hafið thid haft huggulegan dag
inga jenný (IP-tala skráð) 6.11.2008 kl. 22:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.