Góður sigur

Kristján Þór er sigurvegari prófkjörsins í gær og það eru mikil gleðitíðindi fyrir flokkinn. Með hann í efsta sæti, Arnbjörgu í öðru, Ólöfu í þriðja og Þorvald í fjórða ættum við að eiga möguleika á að ná fjórum mönnum inn í kjördæminu, allavega þremur. Ég er sáttur við þetta prófkjör og gaman að sjá uppskeru mikillar vinnu stuðningsmanna.

Það versta við þessi úrslit er að við missum besta bæjarstjórann á Íslandi og skarð hans verður vandfyllt, það eru spennandi tímar framundan í stjórnmálum hér nyrða og ekki síst spenningur sem magnast er vora tekur.

Annars allt rólegt.

Magri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Þetta voru góð úrslit og ánægjulegt að vel hafi raðast á listann okkar. Nú er bara baráttan framundan og við munum bæta miklu við okkur undir forystu Kristjáns Þórs.

verðum í bandi

mbk. Stebbi

Stefán Friðrik Stefánsson, 27.11.2006 kl. 16:19

2 identicon

Þetta verður efalaust ansi fróðleg viðureign í slagnum í vor, milli hans og "áróðursherrans" Steingríms J.   Spennandi tímar framundan og skemmtilegt að kosningadag beri uppá sama dag og Eurovision

Addi E (IP-tala skráð) 28.11.2006 kl. 21:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson

Dalvíkingur, giftur Kristbjörgu, faðir Ásu Eyfjörð, Ægis Eyfjörð og Kára Eyfjörð.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband