2.11.2006 | 21:07
-8+8
Landið er kalt, landið er heitt. Í gær voru hér -8°C, í dag voru +8°C. Ísland er yndislegt land. Lítið að frétta nema skóli og verkefni, sumt gengur vel annað ekki alveg nógu smurt, þannig er lífið.
Við fórum í bíó á sunnudagskvöldið með vinafólki okkar Frey og Silju, Val/Vali (bæði rétt í þgf.) og Þorbjörgu, við sáum Mýrina og þótti öllum myndin góð, spennandi og skemmtileg.
Ég fór á fund á mánudagskvöldið á Hótel KEA þar sem Kristján Þór fundaði með stuðningsmönnum vegna prófkjörs 25. nóvember. Ég ætla að vera með í þeirri baráttu.
Í gær fórum við í mat til Stjána og Kötu, drukkum vín og snæddum kjöt, málin rædd og haft huggulegt með eindæmum. Í kvöld var ekki síður ljúft því við ásamt Guðrúnu tengdaömmu fórum í mat til Gunna mágs og þar drukkum við búlgarskt hvítvín og snæddum kjúkling. Ég bíð spenntur hver verður svo almennilegur að elda fyrir okkur annað kvöld! Gaman saman:)
Í dag var ég í skólanum, kom heim og er að skrifa ritgerð um mállýskur, sögu þeirra og einkenni á Íslandi. Í fyrramálið fer ég á Dalvík að vinna verkefni ásamt þremur konum og erum við að búa til nýtt tungumál, mikið hlegið í þeirri verkefnavinnu. Klukkan 17°° á morgun opnar Kristján Þór svo kosningaskrifstofu í miðbænum og hvet ég alla sjálfstæðismenn til að mæta og kynna sér hvað Kristján Þór hefur fram að færa í landsmálin.
Magri
Athugasemdir
Sæll Gunnþór. Gaman að heyra að þú ert ánægður með námið. Datt eitt í hug við lesturinn, hvenær hefur maður farið "á Dalvík"?? Þetta var eitt það erfiðasta sem ég kenndi útlendingum við íslenskuna, þ.e.a.s. forsetningar, ekki síst með staðarnöfnun sem oft lúta ekki neinum málfræðireglum, heldur eru eins og staðbundnar mállýskur. (Þessi setnign er nú að verða eins og í þýskri orðaröð!!). B.a. ritgerðin mín var um mállýskur...... og þó ég sé að stúdera aðra hluti núna finnst mér þetta alltaf jafn skemmtilegt!! Góða skemmtun í Dalvík og ég bið að heilsa á bæinn!
Kveðjur frá systur í London
Hermina (IP-tala skráð) 3.11.2006 kl. 18:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.