29.10.2006 | 11:56
Amma 80 ára
Í gær átti amma mín Hermína 80 ára afmæli. Við fórum í veislu á Dalvík og var þar mikil gleði meðal ættingja. Kíktum í heimsókn til Freys, Silju og sona auk hádegismatar hjá mömmu og pabba. Þetta var góður dagur á Dalvík.
Ég fékk símtal á Dalvík þar sem kona frá VISA-Ísland spurði hvort ég væri staddur í Búlgaríu? Ég var á Dalvík en í sumar vorum við í Búlgaríu sælla minninga. Hún var að hringja í mig af færsluvaktinni og fá leyfi til að loka kortinu og framleiða nýtt! Kortið var nefnilega afritað og í gær voru teknar út á það 17.000kr og búið að reyna eitthvað meira. Kortinu var sem sagt lokað og ég þarf að skrifa kvörtun vegna færslunnar og fæ nýtt kort. Já þetta var þá satt með búlgörsku mafíuna og Gunnþór er orðinn hluti af veltukerfi þeirra, verð að flytja til Grímseyjar!
Annars allt í sóma. Ég er mjög sáttur við prófkjörið hjá Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, Guðlaugur Þór náði 2. sætinu sannfærandi og Björn Bjarnason mætti alveg verða sendiherra fyrir mér. Geir og Gulli leiða því listana í Reykjavík í vor og held ég að það verði öflugt fyrir flokkinn. Kristján Þór er svo að sjálfsögðu minn maður í 1. sætið í NA-kjördæmi og held ég að hann sigri það prófkjör enda frábær stjórnmálamaður á ferð sem þorir að taka ákvarðanir og standa og falla með þeim.
X-D xdxdxdxdxdxdxdxdxdxdxdxdxd ekkert vit í öðru!
Magri
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.