24.10.2006 | 18:48
Þoka
Þessi litla kisustelpa vældi utan við íbúð vinkonu okkar á föstudaginn. Hún hleypti henni inn en ekkert nafn fannst á ólinni! Hún er um 2-3 mánaða gömul, kassavön og kelin. Enginn hefur gefið sig fram sem eigandi og lögreglan hefur ekki fengið neinar fyrirspurnir um týndan kettling.
Við tókum hana í fóstur þar til eigandi finnst og gáfum við henni nafnið Þoka, hún er svört eins og þoka!
Ég trúi ekki að einhver hafi hent henni út!
Jæja, eigandinn er fundinn og hún kom ánægð að sækja Kattý eins og hún víst heitir. Kærasti stelpunnar var að passa hana og missti út!
Annars allt í góðum gír.
Magri
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.