19.10.2006 | 12:07
Alveg rólegur
Þessa dagana er ég alveg rólegur, fer í skólann, læri heima, læri með öðrum, fer í Kjarnaskóg að hlaupa, horfi á fótbolta, horfi á Sopranos, horfi á CSI New York. Því má segja að línan í lífinu þessa dagana sé stöðug, auðvitað alltaf upp og niður en ekkert sem fer úr böndunum.
Liðna helgi skruppum við í Ólafsfjörð og kíktum á framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng, búið að skera út fyrir gatinu en lítið annað hérna megin. Við fórum í Svarfaðardal á menningarmessu á Rimum, kaffi til afa og ömmu á Dalvík og sunnudagsmat hjá ömmu Kristbjargar sem er fastur liður.
Námið mjakast í rétta átt, mikil verkefnaskil þessa dagana og því gott að vera rólegur en ákveðinn.
Haustið fer vel í mig, finnst rökkrið og bleytan góð blanda, kuldi og stillur enn betri blanda. Ekkert haustþunglyndi á þessum bæ og enginn kvíði fyrir vetrinum, við ættum að vera orðin vön þessum árstíðum!
Jónas biður að heilsa, hann var í hvalnum!
Magri
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.