13.10.2006 | 10:39
Föstudagurinn þrettándi!
Margir trúa því að eitthvað slæmt gerist þegar þrettándi dagur mánaðar ber upp á föstudag. Sumir eru óheppnari en aðrir og telja öruggara fyrir sig að vera innan dyra uppi í rúmi þennan dag. Ég held að þessir dagar séu ekki verri eða betri en aðrir því góðir og slæmir hlutir gerast á hverjum degi og þess vegna er föstudagurinn þrettándi ekki fullkominn dagur frekar en aðrir. Ég hef verið heppinn og óheppinn þennan dag, það er mögulegt að ég trúi eitthvað á þessa vitleysu fyrst ég er að skrifa um þetta og meðvitað gæti ég farið mun varlegar í dag en ella. Vona að allir eigi fínan dag.
Kannski var þessari hjátrú laumað inní samfélagið til að hvert og eitt okkar geri sér grein fyrir að lífið sé ekki sjálfgefið, við þurfum að hafa fyrir ákveðnum hlutum til að þokkalega sé um okkur haldið. Við verðum að líta í kringum okkur og skoða hvar megi gera betur. Reyndar má segja ef þetta væri einhver prófraun þá veitti mannfólkinu ekki af fleiri slíkum til þess að reka sig á! Nærgætni og tillitssemi er nefnilega hverfandi þáttur í samfélagi manna.
Hver setti þetta þá allt saman upp? Var það Stóri-hvellur sem skóp líf á Jörðinni eða var það Guð gamli sem setti allt af stað? Samkvæmt Skipulagsrökunum þá er heimurinn svo fullkomið skipulag að hann hlýtur að eiga sér einhvern skipuleggjara. Kennarinn minn í hugmyndasögu, Kristján Kristjánsson kom með gott dæmi um þetta:
Ég er á gangi í frumskógi þar sem ekkert er nema tré, gróður, dýr og himinn ofan herða. Eftir langa göngu kem ég að rjóðri, í rjóðrinu er risastórt hús og þar inni er bókasafn. Bókasafnið hefur að geyma allar heimsins bækur og er þeim raðað eftir fullkomnu bókasafnskerfi. Ég hlýt að spyrja sjálfan mig: Hvar er bókasafnsvörðurinn???
Enga rökvillu er að finna í þessu dæmi en þó er engin sönnun fyrir tilvist Guðs og leitin að sannleikanum heldur áfram.
Við skulum ekki reyna að snúa á lífið, ef einhver er smeykur við daginn í dag reynir viðkomandi að gera sitt besta og jafnvel aðeins betur ef það er það sem þarf til að komast heilu og höldnu gegnum daginn. Gleymum ekki að aðrir eru hluti af okkar amstri og því ber sérstaklega að huga að náunganum sem mögulega er skíthræddur um að mæta grimmum örlögum sínum í dag, kannski ert þú örlög annarra!
Ef allir reyna við hinn gullna meðalveg og gera sitt besta dag frá degi er möguleiki á að sem flestir eigi góðan dag. Kannski er þetta okkar sannleikur?
Góða helgi og góðan föstudaginn númer 13.
Magri
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.