27.9.2006 | 15:47
Kárahnjúkar
Dettur fólki virkilega í hug að hætt verði við Kárahnjúkavirkjun? Það er enn hægt að snúa til baka! Segja mótmælendur með Ómar Ragnarsson í broddi fylkingar.
Þessi aðgerð öll er lögleg og samþykkt af þjóðkjörnum alþingismönnum með miklum meirihluta. Margt gott og slæmt er hægt að segja um framkvæmd og aðgerðir sem snúa að óteljandi þáttum svona virkjunar. Staðreyndin er sú að þetta er komið til að vera og mun standa okkur öll af sér, sama hvað tautar og raular þá munum við deyja en álið lifir áfram.
Er ekki svolítið seint að vakna núna og mótmæla þessu með skrúðgöngum um allt land? Er ekki frekar að sættast við þetta skref og mótmæla frekari stóriðjuframkvæmdum? Ég gæti alveg tekið undir slíkt, það má ekki kæfa landið í áli.
Svæðið sem fer undir Hálslón verður þriðja stærsta stöðuvatn landsins, þar á eflaust eftir að blómstra fugla- og annað dýralíf (verða bara að passa sig þegar gatið er opið!!). Jafn stórt svæði, ef ekki stærra, verður ræktað upp fyrir tilstilli Landsvirkjunar eins og það svæði sem raskað hefur verið. Hundruðir milljóna verða veittar til uppgræðslu landsins og þar á sennilega eftir að verða miklu fjölskrúðugra dýralíf en á þeim stað sem stíflan stóra er. Eins og mannlífið fyrir austan hefur blómstrað mun dýralífið og náttúran áfram blómstra. Ég tek það fram að ég fór á allt þetta svæði fyrir og eftir virkjanir og sé ekkert eftir þessari framkvæmd, ég gleðst með Austurlandi.
Mótmælum frekar mannréttindabrotum, mengun, háum tollum, of miklu fríi þingmanna eða einhverju sem við virkilega getum barist gegn.
Ég veit vel að þetta fólk berst af hugsjón og gefur hana ekki auðveldlega upp enda bið ég ekki um slíkt. Að berjast gegn einhverju sem ekki fæst breytt er vonlaust. Það er reyndar ein von: Ómar Ragnarsson fer í söfnunarátak og safnar atkvæðum til handa Vinstri-Grænum, ef hann nær yfir 50% kosningabærra manna þá er möguleiki að í vor verði Steingrímur alráður og láti rífa allt sem viðkemur virkjuninni, sennilega er Steingrímur á móti því eins og öðru....... sumt er bara engan veginn mögulegt
Ég mótmæli.
Magri
Athugasemdir
Góð skrif - mjög sammála þeim svo sannarlega. Gaman að lesa. :)
mbk. Stebbi
Stefán Friðrik Stefánsson, 27.9.2006 kl. 16:16
Einstaka sinnum ná menn að tjá sig af skynsemi um þessi mál. Nóg hefur verið bullað.
Ágúst H Bjarnason, 28.9.2006 kl. 08:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.