24.9.2006 | 13:07
Rúmgafl
Rólegt yfir Norðurlandi, sól og kælandi stillur.
Á föstudaginn fórum við í sveitina til systur og hennar gengis á Bakka. Við nýttum okkur skemmuna góðu þar sem við pússuðum dökkan tekk-rúmgafl upp og hvíttuðum hann í stíl við snjóhlébarðaskinnið á rúminu okkar!!!
Allavega fengum við okkur rúmgafl í Vörubæ (konan þar er orðin antik mubla, mæli með að utanbæjarfólk kíki þangað!) og fengum við gaflinn á hálfvirði. Ástæðan fyrir því er að við keyptum rúm þar í liðinni viku og dýnan var ekki til, ekki rétt stærð en átti að koma fyrir þessa helgi. Við fengum því aðra dýnu á meðan og ég hótaði karlinum að ef við fengum ekki góðan gafl á góðu verði þá yrði pissublettur í dýnunni! 50% afsláttur var staðreynd
Annars hefur verið rólegt, læradómur, spila rommý, hitta Bjarna, horfa á sjónvarp og sitthvað fleira. Í dag rennum við aftur í sveitina og sækjum rúmgaflinn og tökum eflaust rúnt á Dalvík.
Magri
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.