Reykingar

ahrif_likami

Að reykja og komast í vímu eða upplifa sælutilfinningu gegnum vafning er eitthvað sem hefur fylgt mannskepnunni frá því að við urðum vitiborin. Merkilegt, því þá ættum við tæplega að teljast vitiborin í dag! Ég skil vel hvað það er gott að fá sér eina sígarettu eða vindil við hátíðartækifæri en ég skil ekki hvað fær fólk til að reykja 20-40 sígarettur á hverjum degi og fá ekkert útúr þeim nema nikótín sem þó leiðir ekki nema sjaldan til alvöru vímu! Víman mun fylgja okkur áfram og kannski mun finnast holl víma sem drepur ekki, lífrænt ræktaður vímuvafningur í apótekum og heilsuhúsum.

Auglýsing: Komdu á baðstofu Betu og púlaðu í ræktinni og fáðu þér eina feita hollustujónu á eftir! Dagsverkin verða lítið mál á eftir!

Við ættum að berjast enn frekar gegn reykingum og þá ekki með reglum og bönnum heldur með því að upplýsa ungt fólk enn frekar um skaðsemi reykinga og hjálpa þeim sem vilja hætta, hinir deyja eins og við hin en kannski bara miklu fyrr.

Sem verðandi kennari langar mig að upplýsa börn um skaðsemi reykinga og annarra lasta, fræðsla er lykilatriði. Við græðum ekkert á því að dæma þá sem reykja heldur ættum við hiklaust að benda fólki á leiðir til þess að hætta.  www.reyklaus.is er fín síða sem fólk ætti að kíkja á.

Líkaminn ánetjast nikótíni og öðrum eiturefnum en heilinn er það öflugt líffæri að með einbeittum og skörpum vilja getur hann eytt þeim taugaboðum sem segja líkamann vanta þessi efni. Svipuð aðferð er notuð við að hætta að drekka áfengi þar sem heilinn er forritaður upp á nýtt þar sem Guð er gjarnan hafður í fararbroddi. Guð hefur ekkert með reykingar eða áfengi að gera, hvorki brynnir það fyrirbæri né kveikir í, það er fyrst og síðast þú sem endurskipuleggur heilann með sterkum vilja. Það kemur ekkert í staðinn fyrir sígarettur eða áfengi, það þarf að útiloka þessa hluti.

Flestir vilja hætta að reykja.

Magri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

..........og sumum tókst það meira að segja :)

Hugrún og Jón Ingi (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 09:23

2 identicon

Viljinn er allt sem þarf að mínu mati...ef mann virkilega virkilega virkilega langar til einhvers þá gengur það upp...!

Helga Hrönn (IP-tala skráð) 20.9.2007 kl. 15:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson

Dalvíkingur, giftur Kristbjörgu, faðir Ásu Eyfjörð, Ægis Eyfjörð og Kára Eyfjörð.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband