Laugarvatn og 21,1 km

Sumarið er gott og ljúft. Við fjölskyldan fórum á Laugarvatn í viku þar sem við dvöldum í kennaraíbúð. Lékum okkur mikið saman, fórum í göngutúra, fórum í sund, keyrðum að Geysi og fórum á Veiðisafnið á Stokkseyri þar sem m.a. mátti sjá uppstoppuð ljón og apa sem okkur þótti öllum áhugavert. Gott að vera á Laugarvatni.

Í gær 11. júlí hljóp ég hálft maraþon í blíðskaparveðri hér á Akureyri í Landsmótshlaupi UMFÍ. Mér gekk vel að hlaupa, mikið líf og fjör í bænum sem hvatti mig áfram, lifandi tónlist á nokkrum stöðum, fjölskyldan mín var í göngugötunni þegar ég fór síðasta sprettinn. Ég stefndi að vera undir 2 klst og það gekk eftir, hljóp þessa 21, 1 km á 1 klst, 50 mínútum og 43 sekúndum. Mjög sáttur.

Í gær áttum við notalegar stundir á Illugastöðum með mömmu og pabba, systrum mínum og mökum og börnum í sumarbústað. Ása varð eftir og finnst frábært, nóg um að vera, krakkar að leika, sund og amma og afi sem stjana við hana. Framundan hjá mér er garðurinn.

Magri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já mér þykir þú ansi öflugur. Hjartanlega til hamingju með þetta. Hvert er leyndarmálið á bak við sjálfsagann og dugnaðinn sem þarf til að nenna þessu?

kveðja úr Borgarfirðinum, Ívar Örn

Ívar Örn (IP-tala skráð) 19.7.2009 kl. 09:47

2 identicon

Blessaður vinur. Það er í raun bara vilji til að vera heilbrigðari, mér líður betur ef ég hreyfi mig og held mér í formi. Svo er konan að hreyfa sig líka og þá verður þetta eitthvað svo eðlilegt ástand:) Hinn gullni meðalvegur, hvorki of né van, er mér fyrir bestu.

Gunnþór (IP-tala skráð) 19.7.2009 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson

Dalvíkingur, giftur Kristbjörgu, faðir Ásu Eyfjörð, Ægis Eyfjörð og Kára Eyfjörð.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband